Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

ÁRÍÐANDI !!! Nýtt fyrirkomulag á afgreiðslu vegabréfa

ekki tekið við umsóknum um ný vegabréf erlendis

17.7.2006

Hafinn hefur verið útgáfa á nýjum íslenskum vegabréfum sem nú verða með svo kölluðum "lífkennaupplýsingum". Gerð er krafa um stafræna mynd af vegabréfshafa sem tekin er með sérstakri myndavél og von er á slíkri vél í íslensk sendiráð síðla sumars.

Í millitíðinni geta sendiráð og ræðismenn ekki tekið á móti umsóknum um ný vegabréf.

Áfram verður þó hægt að bjóða upp á;

- Framlengingu vegabréfs (í lagi þó það sé þegar útrunnið) um eitt ár frá og með þeim degi sem það rann út. Senda má vegabréfið í pósti til sendiráðsins ásamt greiðslu 134,- EÐA óska eftir þessu hjá ræðismanni. Ef leitað er til ræðismanns þarf að leggja upphæðina inn á reikning sendiráðsins og sýna greiðslukvittun hjá viðkomandi ræðismanni.  Reikningsnúmer sendiráðins er hjá Handelsbanken (kontor 6112) 577 172 468.

- Neyðarvegabréf.  Sækja verður um í eigin persónu hjá sendiráði eða ræðismanni.  Neyðarvegabréf gildir í 1 ár frá og með útgáfudegi.  Skila þarf inn 2 passamyndum og athugið að á umsókn fyrir barn þurfa báðir forráðamenn að skrifa undir fylgiskjal sem nálgast má hjá sendiráði eða ræðismanni.  Ef sótt er um hjá ræðismanni þarf að leggja inn á reikning sendiráðsins (sjá ofan).  Gjald fyrir neyðarvegabréf fyrir 18-66 ára er 320,- en aðra yngri eða eldri 120,-.

Athugið að þegar myndavélin verður komin upp í sendiráðinu verður EKKI lengur hægt að sækja um ný vegabréf hjá ræðismönnum.  Koma verður í eigin persónu í íslenskt sendiráð eða sækja um á Íslandi.  Afgreiðsla nýju vegabréfana hefst á Íslandi 23. maí, í Reykjavík má þá sækja um hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík, Borgartúni 7b.

Nánari upplýsingar um nýju vegabréfin má finna á heimasíðu Dóms- og kirkjumálaráðuneytis.

Einnig má finna svör við spurningum er gætu varðað nýju vegabréfin á www.vegabref.is

 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: