Nyheter och evenemang
Íslensk fyrirtæki í Skandinavíu
Icelandic Companies in Scandinavia: Methods and Reputation er heiti skýrslu sem nýlega kom út og var unnin fyrir Útflutningsráð Íslands og IMG Ráðgjöf. Skýrsluhöfundur, Sigrún Davíðsdóttir blaðamaður, kynnti skýrsluna á ársfundi Útflutningsráðs s.l. föstudag og hefur hún vakið töluverða athygli.
Skýrslan byggir á viðtölum við 26 viðmælendur frá íslenskum og skandinavískum fyrirtækjum og fjölmiðlum þar sem greind eru viðhorf og einkenni íslenskra fyrirtækja sem hafa haslað sér völl í Skandinavíu á undanförnum árum. Fjölmargar tilvitnanir eru í viðmælendur í skýrslunni, m.a. lýsir sænskur stjórnandi hinum íslenska stjórnunarstíl svo:
,,The [operational] attitude is very American much in the spirit of the Nike slogan: ‘Just do it!’ This is a very un-Swedish way.”
Að neðan má nálgast skýrsluna í heild sinni (á ensku):
Icelandic Companies in Scandinavia - Methods and Reputation



