Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, og Esbjörn Rosenblad
Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, og Esbjörn Rosenblad

Höfðingleg gjöf til sendiráðs

11.5.2006

Sendiráð Íslands í Stokkhólmi fékk veglega bókagjöf frá Íslandsvininum Esbjörn Rosenblad, sem um árabil starfaði við sænska sendiráðið í Reykjavík. Esbjörn er mörgum Íslendingum að góðu kunnur og hefur um árabil safnað bókum um Ísland og það sem íslenskt er.

Esbjörn Rosenblad er höfundur nokkurra bóka, m.a. tveggja er tengjast Íslandi: Folktro och folksägner på Island og Island i saga och nutid. Sú síðari hefur komið út á sænsku, þýsku og ensku og þekkja margir hið enska heiti hennar: Iceland from past to present . 

Esbjörn Rosenblad færði sendráðinu að gjöf safn íslenskra bóka og bóka um Ísland sem hann hefur eignast í gegnum tíðina og eru honum færðar kærar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: