Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Svíar styðja stækkun ESB

10.5.2006

Þann 1. janúar 2007 er næsta stækkun Evrópusambandsins fyrirhuguð með inngöngu Rúmeníu og Búlgaríu. Sænska þingið samþykkti þessa stækkun einróma í gær, þann 9. maí sem einmitt er Evrópudagurinn. Tóku fulltrúar allra flokka til máls af þessu tilefni og lýstu stuðningi við þessa stækkun og lýstu fulltrúar stærstu flokkana ennfremur yfir stuðningi við frekari stækkun ESB til Tyrklands, Úkraínu, Moldavíu og fleiri ríkja.

Þann 16. maí n.k. mun Framkvæmdastjórn ESB birta skýrslu um stöðu mála í Búlgaríu og Rúmeníu og munu aðildarmöguleikar þessara ríkja á aðild skýrast í kjölfar birtingarinnar. 

Búlgaría er eitt af umdæmislöndum sendiráðs Íslands í Stokkhólmi.  Á árum áður voru skipulagðar hópferðir Íslendinga til Búlgaríu, en undanfarin áratug hafa samskipti landanna aukist verulega, einkum viðskiptaleg. Útrás Actavis, sem þá hér Pharmaco, hófst t.a.m. í Búlgaríu árið 1999 þegar fyrirtækið tók yfir búlgarska lyfjaframleiðandann Balkanpharma í samstarfi við Amber International Invest.  Hafa viðskiptatengsl Íslands og Búlgaríu aukist stöðugt síðan.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: