Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Tilkynning frá íslenska sönghópnum

28.4.2006

Fyrir misskilning rataði röng tímasetning á söngæfingum íslenska sönghópsins á heimasíðu sendiráðsins og leiðréttist hér með.

Söngæfingar eru einu sinni í viku, á miðvikudögum, kl. 18:00-20:00 í safnaðarheimili finnsku kirkjunnar, Slottsbacken 2, Gamla Stan.  (Athugið að fara verður inn i portið á bak við kirkjuna til að komast inn í safnaðarheimilið) 

Sönghópurinn er blandaður kór og starfar sem sjálfstæð eining - óháður annarri félagsstarfsemi - en tekur að sér að syngja við ýmis tækifæri þegar Íslendingar koma saman í Stokkhólmi. Kórinn syngur tónlist af ýmsu tagi, bæði íslenska og erlenda.  Stjórnandi er Brynja Þóra Guðmundsdóttir, píanóleikari.  

Næsti stóri viðburður sem kórinn kemur að eru hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn.  Íslenski sönghópurinn mun halda tónleika undir stjórn Brynju Guðmundsdóttur kl. 13:30 þann 17. júní n.k. og eru allir hjartanlega velkomnir að hlusta á falleg ættjarðarlög á undan messunni sem byrjar kl. 14:00 í finnsku kirkjunni. 

Íslendingar, karlar og konur, sem áhuga hafa fyrir að vera með í kórnum, vinsamlegast hafið samband við Brynju söngstjóra eða Karin formann. 

Brynja Þóra Guðmundsdóttir, heimasími 08-644 45 49 eða farsími 070-790 40 54, tölvupóstur brynjag@yahoo.com  

Karin Hákonardóttir Byström, heimasími  08- 32 57 74, tölvupóstur hakonardottir@hotmail.com



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: