Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Sendiherra afhendir konungi trúnaðarbréf sitt.

Ambassadören överlämnar sina kreditivbrev till HM Konungen.

1.12.2005

Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, afhenti í gær, 30. nóvember, Karli Gústafi XVI Svíakonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Svíþjóð. Athöfnin fór fram í konungshöllinni í Stokkhólmi.

Að afhendingu lokinni átti sendiherra fund með konunginum. Í viðræðum sínum við konunginn lagði sendiherra áherslu á náinn vinskap þjóðanna sem grundvallaðist á gagnkvæmri virðingu og náinni samvinnu á fjölmörgum sviðum. Konungur tók undir þetta og rifjaði upp heimsóknir sínar til Íslands í gegnum tíðina og sagðist hrífast af atorkusemi Íslendinga og krafti á fjölmörgum vettvangi. Hann ræddi útrás Íslendinga í fjármálalífinu og sérstaklega aukna þátttöku þeirra í sænsku atvinnulífi, sem hann sagði vekja jákvæða athygli meðal sænsku þjóðarinnar.

Konungurinn og sendiherrann ræddu einnig menntamál og rifjaði konungurinn upp opinbera heimsókn sína til Íslands á síðasta ári og nefndi þá til sögunnar í háskólann á Akureyri og hvernig sá skóli hefði tekið tæknina í sína þjónustu með fjarkennslu, m.a. með nánum tengslum við stóran nemendahóp með aðsetur í Hafnarfirði.

Alþjóðavæðing, nærsvæðasamstarf, svo sem á vettvangi Norðurlandaráðs, efnahagsmál í víðu samhengi, umhverfismál og þátttaka eldri borgara í atvinnulífinu voru meðal þeirra mála sem báru á góma í um það bil 30 mínútna viðræðum Gústafs Adolfs konungs í Svíþjóð og nýs sendiherra Íslands í Svíþjóð.

Í fyrradag átti sendiherra stuttan fund með utanríkisráðherra Svíþjóðar Laila Freivalds. Á þeim fundi þar sem rætt var um ýmis sameiginleg hagsmunamál ríkjanna kom m.a. fram afdráttarlaus vilji utanríkisráðherra til að viðhalda styrk Norðurlandaráðs og sagði hún nærsvæðasamskipti afar brýn í alþjóðlegu samhengi. Samstarf norrænu ríkjanna væri fyrirmynd víða um heim í þeim efnum.

Sendiráðið í Stokkhólmi er meðal elstu sendiráða Íslands, en það var stofnað 27. júlí 1940. Fyrstur til að veita sendiráðinu forstöðu var Vilhjálmur Finsen, sendifulltrúi. Guðmundur Árni Stefánsson er fimmtándi sendiherra Íslands í Stokkhólmi, en hann tók við af Svavari Gestssyni, sem nú er sendiherra í Kaupmannahöfn.

Samskipti Íslands og Svíþjóðar hafa alla tíð verð farsæl og vinsamleg. Um það bil 4.000 Íslendingar búa í Svíþjóð, þar af um helmingur á Stokkhólmssvæðinu.

_________________________________________________

I går, 30 november, överlämnade Guðmundur Árni Stefánsson ambassadör sina kreditivbrev till HM Konungen vid en högtidlig ceremoni i Kungliga Slottet i Stockholm.

Efter mötet hade Kungen och ambassadören ett samtal där ambassadören bl.a. betonade de två nationernas nära vänskap, grundad på ömsesidig respekt och samarbete inom många områden. Kungen uttryckte sin enighet och återblickade till de många Islandsbesök som han har gjort genom tiderna och sa sig beundra islänningarnar kraft och bedrift inom olika områden, speciellt deras ökade deltagande inom svenskt näringsliv, som han menade hade rönt positiv uppmärksamhet hos det svenska folket.

Under det ca. 30 minuter långa mötet diskuterade Kungen och ambassadören även utbildningsfrågor, globaliseringen, samarbete i närområdet, t.ex. inom det Nordiska Rådet, ekonomi, miljöfrågor och äldre personers deltagande i arbetslivet.

Den 29 november hade ambassadören ett kort möte med utrikesminister Laila Freivalds där de diskuterade de två ländernas gemensamma intressen. Utrikesministern uttryckte sin starka vilja att bidra till Nordiska Rådets styrka och påpekade vikten av samarbete inom närområdet i internationellt sammanhang där de nordiska ländernas samarbete ses som ett bra föredöme.

Islands ambassad i Stockholm är bland Islands äldsta ambassader, öppnat den 27 juli 1940. Guðmundur Árni Stefánsson är den femtonde i raden av isländska ambassadörer i Stockholm. Han avlöste Svavar Gestsson som nu är ambassadör i Köpenhamn.

Island och Sverige har haft ett mycket bra samarbete genom tiderna. För närvarande bor ca. 4000 islänningar i Sverige, därav ca. hälften i Stockholmsområdet.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: