Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Íslenskir ferðamálafrömuðir í Stokkhólmi

Informationsafton på Sturehof 8 november.

10.11.2005

Kynning á landi og þjóð, möguleikum Svía til Íslandsferðar og þeirri þjónustu sem upp á er boðið fyrir erlenda ferðamenn heima á Íslandi, voru meðal þeirra atriði sem hæst báru á ferðakynningu sem fram fór í Sturehof veitingastaðnum í miðborg Stokkhólms, þriðjudaginn 8.nóvember. Að kynningunni stóðu Ferðamálaráð Íslands, Flugleiðir og Ráðstefnumiðstöð Íslands, sem skipulagði viðburðinn og naut við það aðstoðar íslenska sendiráðsins í Stokkhólmi.

Gestir voru fjölmargir frá sænskum fjölmiðlum og fyrirtækjum og aðilum í sænskri ferðaþjónustu, en sérstakt markmið var að kynna Ísland sem áfangastað fyrir ráðstefnur og hvataferðir.

Helga Hauksdóttir sendiráðunautur setti kynninguna með nokkrum orðum og síðan tóku þjónustuaðilar við og kynntu vörur sínar og þjónustu. Boðið var upp á íslenskan mat.

Gestir voru áhugasamir um það sem Ísland byði upp á og fulltrúar íslensku fyrirtækjanna voru ánægðir með undirtektir og áhuga. Sögðu mikil sóknarfæri í stöðunni og möguleika á því að fjölga ferðum Svía til Íslands á komandi árum.

-------------------------------------------------------------------------------

Islands turistråd, flygbolaget Icelandair, Islands Kongressbyrå samt Islands ambassad i Stockholm inbjöd den 8 november till informationsmöte om turism på Island på restaurang Sturehof i Stockholm. På agendan var bl.a. introduktion av Island som turistland och den service Island erbjuder utländska turister, med huvudvikten på incentive-resor och konferenser.

Helga Hauksdóttir ambassadråd öppnade mötet och därefter introducerade flera isländska och svenska turoperatörer, hotell och restauranger sina produkter. Sedan fick gästerna smaka på isländsk mat.

Flera journalister och representanter från svenska företag var närvarande och de visade stort intresse för de möjligheter Island har att erbjuda. De isländska deltagarna var mycket nöjda med visat intresse och uttryckte en föhoppning om en ökning av resandet från Sverige till Island de närmaste åren.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: