Nyheter och evenemang
Fundur um íslenskt efnahagslíf á Grand Hotell
Frukostmöte om den isländska ekonomin.
Landsbanki Íslands bauð í dag til morgunverðarfundar á Grand Hotell í
Stokkhólmi um íslenskt efnahagslíf og íslenskan fjármagnsmarkað. Til
fundarins var boðið stjórnendum og sérfræðingum í bönkum og
fjármálastofnunum auk blaðamanna til að fræða þá nánar um hvað býr að baki árangursríkum fjárfestingum íslenskra fyrirtækja erlendis, ekki síst í Svíþjóð. Edda Rós Karlsdóttir, yfirmaður greiningardeildar Landsbankans
stýrði fundinum, en fyrirlesarar voru Tryggvi Tryggvason,
aðstoðarframkvæmdastjóri í alþjóðasamkiptadeild bankans, Björn Rúnar
Guðmundsson, sérfræðingur í greiningardeild, og Yngvi Örn Kristinsson,
framkvæmdastjóri verðbréfasviðs. Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra og Helga Hauksdóttir sendiráðunautur sóttu fundinn frá sendiráðinu.
Í máli fyrirlesaranna kom fram að stofnun Kauphallar Íslands og einkavæðing ríkisfyrirtækja hafi átt ríkan þátt í að stuðla að fjárfestingum Íslendinga erlendis. Þá hafi vel heppnaðar fjárfestingar í byrjun óneitanlega gefið tóninn og lagt grunn að síðari fjárfestingum. Íslensk fyrirtæki og bankar hafi frekari fjárfestingar erlendis á prjónunum og horfi þá ekki síst til markaðarins á Norðurlöndunum.
-------------------------------------------------------------------------------
Den isländska banken Landsbanki Íslands inbjöd idag på morgonen till ett frukostmöte om isländsk ekonomi och den isländska finansmarknaden på Grand Hotell i Stockholm. Specialister från banker och finansinstitut samt journalister deltog i mötet. Mötets syfte var att informera om bakgrunden till de fruktsamma investeringar som isländska företag har gjort utomlands den senaste tiden, inte minst i Sverige. Specialister från Landsbanki Íslands höll föredrag. Islands ambassadör i Sverige, Gudmundur Árni Stefánsson, och Helga Hauksdóttir ambassadråd deltog i mötet.
Av föreläsningarna framgick att grundandet av den isländska Börsen samt privatiseringen av statligt ägda företag har varit viktiga faktorer när det gäller islänningarnas investeringar utomlands. Lyckade investeringar i första skedet har också bäddat för en fortsättning på samma bana. Isländska företag och banker planerar ytterligare investeringar utomlands, inte minst i Norden.



