Nyheter och evenemang
Höfðingleg gjöf til bóka- og tækjakaupa
Kaupþing færir Uppsalaháskóla eina milljón króna
Að morgni þess 26. september afhenti Kaupþing í Stokkhólmi íslenskudeild Uppsalaháskóla um eina miljón króna. Það var Peter Borsos markaðsstjóri Kaupþings í Stokkhólmi sem afhenti gjöfina. Heimir Pálsson lektor við Háskólann í Uppsölum tók við gjöfinni fyrir hönd háskólans. Auk þeirra voru meðal annars viðstödd sendiherrahjónin Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir, Lennert Elmevik fyrrv. prófessor við norrænudeild Háskólans og Henrik Williams sem nú er prófessor við deildina. Í máli sendiherra kom fram að hann taldi mikilvægt að Kaupþing og önnur íslensk fyrirtæki erlendis tækju þannig af skarið til þess að skýra afdráttarlaust íslenska þáttinn í ímynd sinni. Færði sendiherrann Kaupþingi þakkir, en sagði að lokum að það besta sem Uppsalaháskóli hefði þó fengið frá Íslandi nýlega væri Heimir Pálsson, sem nú er í fastri stöðu sem lektor við háskólann.
Kaupthing i Stockholm har donerat en milljon isländska kronor till avdelningen för isländska vid Uppsala Universitet. Kaupthings marknadschef, Peter Borsos, överlämnade gåvan som Heimir Pálsson lektor i isländska tog emot på universitetets vägnar.



