Nyheter och evenemang
Netverk íslenskumælandi kvenna á Skáni
Hópur íslenskra kvenna á Skáni hefur tekið sig saman og stofnað til félags sem kallast "Netverk íslenskumælandi kvenna á Skáni".
Fundað er reglulega og var síðasti fundur, sem jafnframt var fyrsti fundur haustsins, sunnudaginn 14. nóvember í Lundi. Fyrirlesari á fundinum var Helga Sigurðardóttir, en auk hennar las Draumey Aradóttir upp úr barna- og unglingabók sinni. Einnig var kynnt og seld íslensk leðurlist eftir Eddu Kristinsdóttur.
Netverkið er ætlað til að efla samskipti og samveru íslenskumælandi kvenna á svæðinu og eru áhugasamar konur hvattar til að skrá sig í netverkið með því að senda póst til; islenskar@konur.net
Netverkskonur komast svo að orði um félag sitt;
"Við sem stöndum að netverkinu höfum tekið eftir því að við erum og verðum alltaf útlendingar hérna. Stundum finnst okkur erfitt að tjá okkur á Sænsku og koma til skila það sem við nákvæmlega meinum. Stundum vitum við ekki hvert við eigum að snúa okkur með ákveðna hluti. Hér skiljum við ekki alltaf kulturinn sem liggur að baki og svona mætti lengi telja en síðast en ekki síst þá höfum við ekki það net sem við höfðum heima. Net sem við vorum búin að vera hálfa ævina að byggja upp og þá tala ég nú ekki um fjölskylduna sem bara var þarna.
Hér sitjum við núna ólíkar konur sem allar erum fullar af hugmyndum og höfum mikið að gefa hvor annarri, sumt vitum við þegar um annað er leynt og á eftir að koma í ljós. Vonum við að ykkur finnist þessi hugmynd góð og þörfin fyrir netverki jafn sterk og okkur."



