Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Margmiðlunarefni á íslensku fyrir útlendinga

sjálfsnám fyrir skiptinema á háskólastigi.

3.5.2004

Stofnun Sigurðar Nordals hefur nú gefið út margmiðlunarefnið Carry on Icelandic: Learn Icelandic and enjoy it! Þetta er sjálfsnámsefni í íslensku fyrir byrjendur sem er einkum ætlað erlendum skiptinemum á háskólastigi en stúdentaskipti milli Íslands og annarra Evrópulanda hafa stóraukist á undanförnum árum. Margir þeirra sem til landsins koma hafa þó ekki átt kost á að þjálfa sig í íslensku til undirbúnings dvölinni og er efninu, sem er það fyrsta sinnar tegundar, ætlað að bæta úr því; með því að fylgjast með aðalpersónum myndbandsins að leik og störfum – hlusta, horfa, lesa og endurtaka, allt eftir því sem hverjum hentar – og sækja sér upplýsingar í upplýsingabankann á margmiðlunardisknum geta notendur efnisins lært undirstöður daglegs máls og fræðst um land og þjóð.

Frekari upplýsingar um margmiðlunarefnið má finna á vefsíðu Stofnunar Sigurðar Nordals ; www.nordals.hi.is

en Háskólaútgáfan ; www.haskolautgafan.hi.is 

sér um dreifingu á efninu.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: