Nyheter och evenemang
Íslensk hönnun - sænsk framleiðsla
Kynningarfundur í Útflutningsráði með húsgagnahönnuðum tókst framúrskarandi vel.
|
Hönnunarfundurinn hjá Útflutningsráði tókst framúrskarandi vel. Hann sóttu um 40 manns - vissulega ekki allt hönnuðir heldur líka starfsmenn Útflutningsráðs, þar á meðal forstjóri ráðsins Jón Ásbergsson. Þeir Svavar Gestsson sendiherra, Leó Jóhannsson arkitekt, David Abresparr sem er framkvæmdastjóri Svensk Handel og Sigurður Gústafsson fjölluðu um samstarf hönnuða á Íslandi og sænksra húsgagnaframleiðanda. Á myndinni eru framsögumenn og Sigurður sem sat fyrir svörum ásamt þeim. |
Áður birt á vef sendiráðsins (25. maí);
Útflutningsráð, í samvinnu við sendiráð Íslands í Svíþjóð, boðar til kynningarfundar með húsgagnahönnuðum fimmtudaginn 27. maí n.k. kl. 13:00. Efni fundarins er kynning á mögulegum verkefnum á sviði húsgagnahönnunar í samstarfi við sænska húsgagnaframleiðendur og hugsanleg hönnunarsýning í Stokkhólmi árið 2005.
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi hefur, í samvinnu við sænska innflutningsráðið, komist í samband við fimm stóra sænska húsgagnaframleiðendur sem hafa áhuga á að framleiða húsgögn eftir íslenskum teikningum. Ef af samstarfi verður er markmiðið að sýna afraksturinn á íslenskri hönnunarsýningu í Stokkhólmi árið 2005. Nú er í athugun hvort unnt verður að halda slíka hönnunarsýningu þar sem Svíum verður kynnt íslensk hönnun í víðu samhengi. Vinnuheiti þess verkefnis er "Hönnun er efnahagsleg nauðsyn".
Til að kynna möguleika á samstarfi íslenskra húsgagnahönnuða og sænskra framleiðenda boðar Útflutningsráð, í samvinnu við sendiráð Íslands í Svíþjóð, til kynningarfundar fimmtudaginn 27. maí n.k. í Borgartúni 35. Þar mun Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, kynna hugmyndina almennt en Leó Jóhannsson, arkitekt, mun kynna samstarfið við sænsku húsgagnaframleiðendurna, en Leó hefur um árabil starfað sem húsgagnahönnuður í Svíþjóð. David Abresparr, framkvæmdastjóri sænska innflutningsráðsins, mun á fundinum segja frá átaki til að auka innflutning til Svíþjóðar. Gestur á fundinum verður Sigurður Gústafsson, arkitekt, sem unnið hefur með sænska framleiðandanum Källemo.
Fundurinn er öllum opinn en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Útfluningsráðs eða í síma +354 511 4000.
Nánari upplýsingar og dagskrá fundarins má finna á heimasíðu Útflutningsráðs.



