Nyheter och evenemang
Íslensk hátíðarmessa á annan í jólum, 26. desember kl. 14 í Finnsku kirkjunni
Jólakaffi og jólaball Íslendingarfélagsins að messu lokinni.
Íslensk hátíðarmessa verður í finnsku kirkjunni, Slottsbacken 2 (við hliðina á kóngshöllinni) sunnudaginn 26. desember kl. 14,00.
Íslenski sönghópurinn syngur og kirkjugestir taka virkan þátt í söngnum samkvæmt venju .
Upplýsingar frá Íslendingafélaginu:
Á eftir verður jólaball fyrir börn og fullorðna í umsjá Íslendingafélagsins. Á jólaballinu mætir líka jólasveinn og til að hann geti fyllt pokann sinn þarf að hjálpa honum svolítið. Allir beðnir að taka með lítinn pakka (sem má ekki kosta meira en 25 kall).
Íslendingarfélagið sér um kaffi, te, gos og sælgæti en gestir eru vinsamlegast beðin um að stuðla að kaffihlaðborðinu og taka með kökur, tertur, bollur, rjómakökur, pönnukökur, bakkelsi o.fl. Flottasta listaverkið fær verðlaun !



