Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Helga Hauksdóttir varamaður sendiherra í Stokkhólmi

tekur við af Maríu Erlu Marelsdóttur sendiráðunaut.

3.8.2005

Nú við mánaðarmótin júlí/ágúst lætur María Erla Marelsdóttir sendiráðunautur af störfum í sendiráðinu en hún hefur starfað við sendiráðið í Stokkhólmi í rétt fjögur ár sem varamaður sendiherra. María Erla er lögfræðingur og fer nú í námsleyfi við Stokkhólmsháskóla í eitt ár. Sendiráðið óskar henni og fjölskyldu hennar velfarnaðar og þakkar fyrir samstarfið síðastliðin fjögur ár.

Það er Helga Hauksdóttir sendiráðunautur sem tekur við af Maríu.  Helga er einnig lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum frá árinu 2002. Hún flytur frá New York með manni sínum Hafþóri Þorleifssyni og dóttur þeirra Urði.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: