Sendiráð Íslands - Osló, Noregi

Stortingsgata 30, 0244 Oslo, Tel: +(47) 2323-7530



Leiðbeiningar um íslensk vegabréf

Umsókn um íslenskt vegabréf

Vakin er athygli á því að ræðismenn geta ekki lengur tekið við umsóknum um vegabréf. Ræðismenn geta eftir sem áður framlengt vegabréf (einungis má framlegja vegabréf um eitt ár framyfir þá dagsetningu er vegabréfið gekk út gildi).

Afgreiðslutími fyrir vegabréf í sendiráði Íslands í Osló er frá 10-15 alla virka daga. Vinsamlega pantið tíma hjá sendiráðinu fyrirfram í síma 23 23 75 30.

Þegar sótt er um vegabréf þarf að sýna eftirfarandi gögn:

  • Eldra vegabréf
  • Kvittun fyrir greiðslu vegabréfs
  • Sjá upplýsingar um sérstakar reglur fyrir ólögráða aðila neðar

Umsækjandi þarf að koma í sendiráðið í eigin persónu þar sem lífkennamynd er tekin af viðkomandi á staðnum. Þar með er óþarfi að koma með passamynd. Umsækjandi þarf að vita hæð sína.

Gjald fyrir vegabréf er NOK 450 fyrir 18-66 ára en NOK 170 fyrir aðra. Það skal greiða fyrirfram í banka/netbanka inn á reikning sendiráðsins nr.: 9235 21 50985 í BNBank. Ekki er tekið við greiðslukortum í sendiráðinu.

Vegabréfin eru útbúin á Íslandi og póstsend á heimilisfang umsækjanda innan fárra daga.

Vegabréf fyrir ólögráða aðila

Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn yngra en 18 ára er þess krafist að báðir foreldrar eða forráðamenn komi í sendiráðið og samþykki útgáfu vegabréfsins með undirskrift á tiltekið fylgiskjal, Fylgiskjal með umsókn um vegabréf fyrir ólögráða aðila.

Barn sem fætt er erlendis, og hefur ekki fengið útgefið vegabréf áður, þarf að hafa verið skráð sem íslenskur ríkisborgari í þjóðskrá Hagstofu Íslands, og fengið úthlutað kennitölu. Vottorð þar af lútandi þarf að framvísa ásamt fæðingavottorði.

Nafnabreytingar

Ef umsækjandi hefur tekið upp nýtt eftirnafn eða breytt á einhvern hátt nafni sínu þarf að vera búið að ganga frá tilkynningu um slíkt til þjóðskrár Hagstofu Íslands (www.thjodskra.is). Slíkt gerist ekki sjálfkrafa þó makar taki upp nafn hvors annars til dæmis við hjónavígslu í Noregi.

Umsækjendum er bent á að sannreyna að nafn þeirra sé skráð í þjóðskrá Hagstofu Íslands eins og óskað er að það komi fram í vegabréfi, sé ástæða til að ætla að um misræmi gæti verið að ræða.

Gjaldskrá sendiráðsins

18-66 ára
Almennt gjald                450
Fyrir skyndiútgáfu            900
Fyrir neyðarvegabréf        230
Ökuskírteini                    350

Aðrir
Almennt gjald                 170
Fyrir skyndiútgáfu            370
Fyrir neyðarvegabréf         90
Ökuskírteini                    100



 

 

 

Póstfang:

Islands Ambassade 0244 Oslo


Netfang:


Fax:

+47 2283 0704


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, norska, enska, franska, þýska.


 

Leturstærð: