Þorrablót Íslendingafélagsins í Osló
Upplýsingar frá félaginu:
Þorrablót 2008 verður haldið þann 2. Febrúar í Sagene Festivitetshus, Holstsgate 3 i Oslo.
Hljómsveitin Izafold sem skemmti okkur svo eftirminnilega í fyrra kemur frá Íslandi á ný og leikur fyrir dansi. Izafold er ein vinsælasta hljómsveit Íslands og hefur leikið undir hjá fjölda listamanna við ýmis tækifæri.
Verð fyrir félagsmenn er kr 400 og fyrir utanfélagsmenn 550 kr. Í ár verður miðasalan eingöngu á netinu. Miðafjöldi er takmarkaður 175 stk og fyrstur pantar fyrstur fær.
Það fer þannig fram að þeir sem ætla að fá miða senda pöntun með nafni/nöfnum og fjölda miða á netfang sigrun66@online.no og greiða síðan miðaverðið inn á reikning Íslendingafélagsins 6019 05 31417. Nauðsynlegt er að sýna kvittun greiðslunnar á þorrablótinu. Frestur til að panta og greiða miða er til 26. janúar.
Skemmtiatriði og okkar árlega happadrætti verður.
Með bestu kveðju og von um góða mætingu
Stjórn Íslendingafélagsins í Osló



