Fjölskyldudagur í Frognerparken 25.nóv
Fréttatilkynning frá Íslendingafélaginu í Osló:
Sunnudaginn 25. Nóvember ætlum við að hafa fjölskyldudag í Frognerparken kl. 14:00 þar sem íslensku börnin geta komið saman með foreldrum sínum og leikið sér og kynnst. Þar er fínt leiksvæði sem við getum hist og jafnvel er hægt að fara í gamla góða íslenska leiki eins og Kött og mús eða Hlaupa í skarðið, allt eftir hvað fólk vill. Vonum við að þetta mælist vel fyrir hjá barnafólki, vel verði mætt og þetta þjappi fólki saman.
Skatan og saltfiskurinn eru komin til Noregs!!
Skötuveislan verður þann 8. desember, kl 17:00 og að þessu sinni verðum við á Antenneveien 40 á Lambertseter. Hægt er að taka lest frá miðbænum að Lambertseter stasjon (Bergkristallen). Nauðsynlegt er að skrá sig til veislunnar með því að hringja í síma 9545 3682 (Einar) eða senda email á sigrun66@online.no Nú verður sú nýbreytni að við seljum miðana í forsölu. Hægt er að leggja inn á reikning nr 60190531417 og fólk er beðið að prenta út kvittun sem gildir sem miði. Miðaverð er kr 200. (þeir sem nú þegar hafa skráð sig þurfa ekki að gera það aftur, einungis að leggja inn á reikningsnúmerið)
Að lokum viljum við minna á að þorrablótið verður 2. febrúar ....fjöldi miða verður 200 svo fyrstur skráir sig, fyrstur fær og miðasalan verður með sama hætti og í skötuna, þ.e. lagt inná reikning félagsins. Hljómsveitin Izafold kemur aftur og heldur uppi dúndrandi stemmingu eins og síðast. Nánari upplýsingar um þorrablótið koma hinsvegar síðar.
Með bestu kveðju
Stjórnin



