17. júní hátíðarhöld Íslendingafélagsins í Osló
Sunnudaginn 17.júni kl. 14.00 verður haldið upp á lýðveldishátíðina fyrir utan Nordbergkirkju í Osló. Hæ, hó, jibbý-jey og jibbý-jey. Heilmikil dagskrá verður að vanda og mun að þessu sinni Einar Júlíusson söngvari heimsækja okkur og skemmta.
Að sjálfsögðu mætir Fjallkonan, Guðsþjónusta verður á sínum stað með Ískórnum, farið verður í skrúðgöngu með lúðrasveitinni frá Ringerike, ToneArt skemmtir, dregið verður úr happdrætti með 1. vinning sem Íslandsferð í boði Icelandair, farið verður í Línudans og margt fleira skemmtilegt verður á döfinni. Kirkjukaffi er í boði safnaðarins en Íslendingafélagið verður með sölu á pylsum, sælgæti og fl. Allur hugsanlegur ágóði rennur í sjóð Íslendingafélagsins. Félagið óskar hér með eftir sjálfboðaliðum til aðstoðar við 17.júní skemmtunina. Mæting kl.13 fyrir starfsmenn. Látið vita í síma Íslendingafélagsins 954 53 682 þeir sem geta hjálpað til. Hæ, hó, jibbý-jey og jibbý-jey, það er kominn 17. júní.
Íslendingafélagið í Osló: 17. júní hátíðarhöld



