Islands Ambassade - Oslo, Norge

Stortingsgata 30, 0244 Oslo, Tel: +(47) 2323-7530



Nyheter og meldinger


Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði heldur tónleika í Osló

3.5.2007

Kór Öldutúnsskóla mun halda tónleika í Nordbergkirkju sunnudaginn 13.maí kl. 17.00. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Barnakór Bölerskóla.

Stjórnendur á tónleikunum er Brynhildur Auðbjargardóttir og Vigdis Oftung.

Aðgangur er ókeypis.

Kór Öldutúnsskóla var stofnaður 1965.  Stofnandi hans og stjórnandi til 2005 var Egill Friðleifsson.  Undir hans stjórn hefur kórinn sungið víða um heim og tekið  þátt í kóramótum og kórakeppnum.  Egill er frumkvöðull í barnakórastarfi á Íslandi.

Brynhildur Auðbjargardóttir stjórnaði Íslendingakórnum í Ósló í 8 ár.  Þetta er fyrsta utanlandsferð hennar með kórinn.



 

 

Postadresse:

Islands Ambassade 0244 Oslo


E-mail:


Fax:

+(47) 2283 0704


Åpningstider:

Mandag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Islandsk, norsk, engelsk, tysk, fransk.


 

Leturstærð: