Íslendingafélagið í Osló hefur opnað nýja heimasíðu www.islendingafelagid.no
Upplýsingar frá stjórn félagsins um nýju heimasíðuna:
Þar munu koma allar fréttir og tilkynningar um hvað er á döfinni og félagsmenn og aðrir eru beðnir að fylgjast vel með á síðunni þar sem nokkuð hefur borið á að fólk kvarti yfir að það viti ekki hvað er að gerast á vegum félagsins fyrr en of seint.
Á síðunni er smáauglýsingadálkur þar sem fólk getur sent inn smáauglýsingar (á email sigrun66@online.no fyrst um sinn) af öllum toga s.s. til sölu, óskað eftir hlutum, óskað eftir íbúð á leigu eða auglýst til leigu, vantar barnapíu o.s.frv. Fólk er hvatt til að nýta sér þetta.
Þar er einnig myndasíða og þeir sem eiga skemmtilegar myndir, á tölvutæku formi, frá þorrablótum, skötuveislunni síðasta ár eða öðru eru hvattir til að senda þær inn svo hægt sé að leggja þær út á síðuna og fleiri fái að njóta.
Undir liðnum FRÉTTIR koma allar tilkynningar og fréttir frá félaginu.
Nú líður að því að við förum að senda út gíróseðla fyrir árgjaldinu 2007. Ef fólk hefur flutt síðan á síðasta ári er það beðið að senda inn nýtt heimilisfang svo við endursendingar vegna rangs heimilisfangs séu sem minnstar.
Kakali kemur því miður ekki út á þessu ári einfaldlega vegna þess að okkur vantar fólk til að vinna við útgáfuna og auglýsist hér með eftir áhugasömum pennum og fleirum sem vilja hjálpa til við að koma blaðinu út á næsta ári. Einnig vantar alltaf fólk til að hjálpa til við samkomur félagsins.
Og þá er komið að dagskrá vetrarins:
16. Desember kl. 16 verður skötuveisla í mötuneytinu hjá Önnu Ben (sama stað og í fyrra.. þá var fullt) Nauðsynlegt er að skrá þátttöku sem fyrst þar sem þátttaka er takmörkuð. Sjá nánari uppl. um pantanir á www.islendingafelagid.no .
3. febrúar 2007 verður svo þorrablótið og að þessu sinni fáum við unga og spræka stráka frá Íslandi til að leika fyrir dansi. Þetta er hljómsveitin Skítamórall, sem er ein vinsælasta danshljómsveit Íslands og hafa þessir strákar spilað á fjölda dansleikja og þorrablóta innanlands sem utan. Nú þegar er farið að taka við pöntunum á þorrablótið og fólk hvatt til að tryggja sér miða hið fyrsta. Sjá nánar um verð og annað á www.islendingafelagid.no
Okkur langar mikið að gera eitthvað fyrir yngri kynslóðina og stendur okkur til boða að fá tvær persónur úr Latabæ (Lazytown á TV2 www.lazytown.com ) í heimsókn í apríl 2007 ef áhugi reynist fyrir því. Þetta myndu væntanlega verða þær Solla Stirða (Stephanie) og Halla Hrekkjusvín (Trixie). Okkur þætti gott að fá að sjá frá ykkur sem eigið börn hvort áhugi sé fyrir hendi á að fá þær stöllur hingað og skemmta krökkunum okkar og jafnvel norskum vinum þeirra. Gaman væri að fá að heyra frá ykkur varðandi þetta á emaili til sigrun66@online.no
Með bestu kveðjum
Stjórn Íslendingafélagsins í Osló


