SÖNGUR OG SÖGUR
Sumarbúðir fyrir íslensk börn búsett erlendis í Skálholti 17.-21. júlí 2006
Feriekoloni for islandske barn bosatt utenlands i Skálholti, Island 17.-21. juli 2006
Sumarbúðirnar sem kallast Söngur og Sögur, eru ætlaðar börnum 8 – 13 ára sem búa erlendis og eiga a.m.k annað foreldrið íslenskt og tala íslensku nógu vel til að njóta dagskrárinnar.
Áhersla verður lögð á að kynna börnunum ýmsa þætti íslenskrar menningar svo að þau verði hagvanari þegar heim er komið. Kennd verða. íslensk þjóðlög og skemmtileg nútímalög við leiðsögn tónlistarkennaranna Heiðrúnar Hákonardóttur og Svövu Bernharðsdóttur sem og íslenskar þjóðsögur og ævintýri sem Guðrún Ásmundsdóttir leikari segir og leikur með þeim ásamt Ragnheiði Lárusdóttur bókmenntafræðingi. Þá leiða garðyrkjufræðingar börnin inn í heim íslenskra jurta og þau munu elda þjóðlega rétti með aðstoð Láru Jónsdóttur heimilisfræðikennara. Einnig heimsækir hópurinn bændabýlið í Skálholti og kynnist störfum og skepnum þar og fer í sögugöngu um Skálholtsstað. Bernharður Guðmundsson rektor veitir námskeiðinu forstöðu.
Fyrsta námskeiðið af þessu tagi fór fram í fyrrasumar og tókst afar vel og hvöttu foreldrar og börn eindregið til þess að halda þessu starfi áfram. Námskeiðið hefst eftir hádegið á mánudeginum 17.júli og taka aðstandendur þátt í fyrstu atriðum dagskrárinnar og lýkur með uppskeruhátíð síðdegis á föstudegi þar sem vandamenn eru líka velkomnir !
Börnin verða tvö í herbergi með uppbúnum rúmum. Þátttökugjald fyrir fæði, gistingu og alla fræðslu er. kr. 22.000 . Systkinaafsláttur er veittur
Innritun og nánari upplýsingar í Skálholtsskóla sími 486 8870, netfang; skoli@skalholdt.is



