Opið béf frá undirbúningshópi um aukið félagslíf Íslendinga í Noregi
Kæru Landar
Lítill hópur Íslendinga hefur komið saman af og til og rætt mál Íslendinga í Noregi og þá sérstaklega í Ósló. Það eru u.þ.b. 4000 landar í Noregi, þar af ríflega 50% hér á Óslóarsvæðinu, með margskonar óskir og þarfir hvað snertir tengsl við landa sína og íslensk málefni. Við upplifum að almennt félagsstarf Íslendinga í Ósló er nú mun minna en áður og að það sé þörf til bóta. Við óskum með þessu bréfi að kynna og jafnframt hvetja aðra til að koma með óskir sínar og tillögur um lausnir, og þannig koma af stað umræðum sem vonandi leiða til nýrra möguleika!
Breyttar aðstæður
Ástæðurnar fyrir því að félagslíf Íslendinga hefur fölnað síðustu missirin eru margvíslegar:
· Nútímatækni: með “Moggan” og sjónvarpsfréttir á Internetinu, tölvupóstur, og sími sem sífelt verður ódýrari .
Ódýrari og tíðari flugferðir landanna á milli gerir það auðveldara fyrir landann að skreppa “heim”.
Hefðbundin tilboð
Jafnframt þessu getur verið að ein ástæða fyrir minnkandi félagsstarfssemi megi rekja til þess að “almenn tilboð ” höfði ekki á sama hátt og áður til fólks.
· Það hafa verið haldin þorrablót, 17 júní fagnaður o.s.frv. hjá Íslendingafélaginu sem það hefur lagt mikla vinnu í en aðsókn hefur ekki alltaf verið sú sem vænst var.
· Mæting íhámessur Íslenska safnaðarins eru ekki í samsvar við væntingar og þá vinnu sem er lögð í undirbúning þeirra.
· Önnur ástæða fyrir minnkandi félagsstarfssemi gæti verið fjárhagsleg, en eins og flestum er kunnugt um hafa bæði Íslendingafélagið og Stúdentafélagið haft úr litlu að moða, og þær samkomur sem þessi félög hafa staðið fyrir hafa ekki alltaf borið sig fjárhagslega.
Við teljum að taka verði tillit til að þarfir og óskir landans eru misjafnar. Hinsvegar ættu að vera margar góðar forsendur fyrir íslenskri menningarstarfssemi. Við erum m.a. ein stærsta nýlenda Íslendinga erlendis, og ættum því að geta haldið uppi blómlegri íslenskri starfssemi.
Óskir um íslenskt umhverfi sem mætir þörfum ákveðinna hópa
Við upplifum að það sé ótvírætt þörf fyrir að koma saman og hitta samlanda hér i Ósló, en taka verði tillit til að fólk tengist meira í gegnum ákveðna áhugahópa nú en áður, til dæmis:
· Ískórinn er mjög virkur með æfingar einu sinni í viku með að jafnaði 25- 30 manns.
· Það er starfandi mæðrahópur 13 ísl. mæðra sem eiga börn fædd 2005.
· Landanetið, ca. 30 fastbúandi Íslendingar sem eru í föstum störfum í því opinbera eða í viðskiptalífinu , hittist að jafnaði mánaðarlega.
· Það var stofnað Norskt Íslenskt Viðskiptaráð hér í Ósló í mars 2006 með mörgum nýjum íslenskum fyrirtækjum í Noregi.
· Að auki fjöldi íslenskra “saumaklúbba”, fastir íþróttatímar, o.s.frv.
Hvað er til ráða?
Það er eindræg ósk okkar um að stofnað verði til samvinnu milli íslenskra áhugahópa, félagasamtaka/ stofnanna í Ósló sem gæti styrkt íslensk samskipti sem gæti leitt til Þess að staða íslenskrar menningu í Ósló styrktist.
· Við mælum með því að það stofnaður verði breiður og opinn verkefnishópur til að vinna að því að vekja áhuga á málstaðnum og efla samvinnu milli félaga og stofnanna á Óslóarsvæðinu.
Í þessum verkefnishópi gætu átt sæti fulltrúar allra félaga Íslendinga á Óslóarsvæðinu: Íslendingafélagssins, Stúdentafélagsins, Íslenska safnaðarins, Ískórsins, Landanestisins, Leikhópsins Kex og Íslenska sendiráðsins. Í viðbót mætti bjóða fulltrúum annara félaga eða stofnanna svo og einstaklingum sem sýna málstaðnum áhuga.
Hvað ber að bjóða upp á?
Við hvetjum til þess að komið verði með tillögur sem svar við þessu bréfi.
Möguleikarnir eru margir, t.d:
· Auka áhuga í þátttöku á hefðbundnum samkomum eins og Þorrablóts, 17.júni hátíðahalda, 1 des hátíð, jólaball, o.s.v.
· Margir fastbúandi íslenskir foreldrar sakna aðstæðna sem gefa börnum þeirra möguleika á að læra og styrkja íslenskuna sína. Það er ekki hægt að bjóða upp á formlega íslenskukennslu í Ósló í fyrstu umferð, en með minni fyrirhöfn ætti að vera hægt að koma upp barnaklúbbum, táningatilboði, tilboð um íþróttatíma, útilíf t.d. í húsinu uppi í Norefjell, o.s.frv.
· Aðgangur að bókasafni væri mikils metin bæði fyrir ”litla og stóra”.
· Fyrir “eldri árgangana” væri t.d. átak sem á sér stað nú í maí, með Íslenskri kvikmyndaviku, vel þeginn.
Verkefnishópurinn gæti þegar fram í sækir jafnvel athugað möguleikann á að komast yfir húsnæði sem gæti þjónað sem eins konar íslenskt menningarsetur fyrir mismunandi hópa og samkomur. T.d. börn, unglinga, foreldra í fæðingarorlofi, ellilífeyrisþega, stúdenta, 17. júní fagnaðar, o.fl.
Hvatt til samstöðu - “sameinaðir stöndum vér ... ”
Tillaga okkar er að þessi verkefnishópur verði stofnaður nú í vor.
Þ.e.a.s. að þegar Íslendingafélagið og Söfnuðurinn halda aðalfundi sína í vor, Þá verði þessi tillaga um að stofna sameiginlegan verkefnishóp Íslendinga í Ósló, tekin fyrir. Það sama gildir um önnur samsvarandi félagasamtök.
Við hvetjum til þess að hvert félag ræði þessa tillögu með sínu fólki og taki til atkvæðagreiðslu á aðalfundi sínum, þar sem það á við, - hvort félagið eigi að vera hluti af slíku samstarfi. Við biðjum um að komið verði með niðurstöðu ekki seinna enn 15 maí 2006.
Fyrir þau félög sem eru með netfangaskrá yfir íslendinga í Noregi biðjum við um að þetta bréf verði sent áfram til þeirra. - Hefur þú lesandi góður tillögur eða athugasemdir, sendu svar tilbaka á sama netfang!
Við hvetjum alla landa að vinna saman að aukinni íslenskri menningarstarfssemi og samstöðu íslendinga á Óslóarsvæðinu; að taka þátt í umræðunni og taka þátt í því átaki - “vakningu” að geta boðið upp á öflugt íslenskt menningarlíf!
Með bestu kveðjum
Fyrir hönd undirbúningshópsins
Hörður Sverrisson



