Frekari upplýsingar um heimsókn utanríkisráðherra
Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, eru í tveggja daga opinberri heimsókn í Noregi, í boði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs.
Heimsóknin hófst með áheyrn hjá Haraldi Noregskonungi í höll konungs í Osló.
Frá Osló munu utanríkisráðherrahjónin halda áleiðis til Stavanger.
Frekari upplýsingar um heimsóknina má sjá í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins.



