Delegation of Iceland to NATO - Brussels

Boulevard Leopold III 39, 1110 Bruxelles, Tel: +32 (0)2 707-5089


Tungumál



Grannríkjasamráð á sviði öryggis- og varnarmála

7.11.2007

Mánudaginn 5. nóvember sl. fór fram fyrsti reglulegi samsráðsfundur embættismanna á grundvelli samkomulags Íslands og Danmerkur um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Fundurinn fór fram í Kaupmannahöfn og tóku þátt í honum embættismenn frá utanríkisráðuneytinu, forsætisráðuneytinu og dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Fjallað var um sameiginleg hagsmunamál og viðfangsefni á Norður-Atlantshafi og aukið hagnýtt samstarf á ýmsum sviðum.

Þriðjudaginn 6. nóvember áttu embættismenn utanríkisráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og dóms- og kirkjumálaráðuneytisins jafnframt fund með þýskum embættismönnum um öryggis- og varnarmál. Fundurinn, sem fram fór í Berlín, var haldinn í framhaldi af samráði embættismanna landanna tveggja sem fram fór í Reykjavík sl. vor.  Markmið þessara viðræðna er að kanna möguleg samstarfsverkefni ríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála.



 

 


Fax:

+32 (0) 2 726-4531


Opening Hours:

Mon-Fri
09:00 - 17:00


Languages:

Icelandic, English, French.


 

Leturstærð: