Utanríkisráðherrafundur NATO í Búlgaríu
Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, sat óformlegan fund utanríkisráðherra Norður-Atlantshafsbandalagsins sem fram fór 27. - 28 apríl í Sofía í. Á fundinum ræddu ráðherrarnir undirbúning leiðtogafundar bandalagsins sem haldinn verður í Riga í nóvember n.k. Meðal annars var rætt um hugmyndir um stækkun bandalagsins, aukið samstarf NATO við ríki utan Evró-Atlantshafssvæðisins, og mögulegt samstarf við ríki í Miðausturlöndum um þjálfun friðargæslusveita. Ráðherrarnir ræddu einnig ástandið í Afganistan og friðargæslu bandalagsins í landinu og áframhaldandi veru friðargæslusveita NATO í Kosovó.
Einnig voru haldnir fundir í samstarfsráði bandalagsins með Rússlandi og í samstarfsnefnd bandalagsins með Úkraínu.
Utanríkisráðherra sat einnig kvöldverðarfund ráðherra frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins. Þar var m.a. fjallað um þróun mála í Miðausturlöndum og í Darfúr í Súdan.
Nánari upplýsingar má finna á vef NATO.





