Delegation of Iceland to NATO - Brussels

Boulevard Leopold III 39, 1110 Bruxelles, Tel: +32 (0)2 707-5089


Tungumál



Utanríkisráðherrafundur í Brussel

30.11.2005

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, sat utanríkisráðherrafund Norður- Atlantshafsbandalagsins í Brussel 8. desember 2005. Á fundinum ræddu ráðherrarnir undirbúning leiðtogafundar bandalagsins á næsta ári þar sem fjallað verður um árangur og næstu skref til að bregðast við nýjum aðstæðum í öryggismálum. Þeir áréttuðu mikilvægi NATO fyrir sameiginlegar varnir og sem samráðsvettvangs Evrópu og Norður-Ameríku um öryggismál og ítrekuðu nauðsyn aukins samstarfs við aðrar alþjóðastofnanir, einkum Sameinuðu þjóðirnar ogUtanríkisráðherrafundur 2005 Evrópusambandið.

Einnig voru haldnir fundir í samstarfsráði bandalagsins með Rússlandi, í samstarfsnefnd bandalagsins með Úkraínu og í Evró-Atlantshafssamstarfsráðinu.

Kvöldið fyrir utanríkisráðherrafundinn sat Geir H. Haarde kvöldverðarfund utanríkisráðherra frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins sem haldinn var til að styrkja Atlantshafstengsl Evrópu og Norður-Ameríku.

Nánari upplýsingar um ofangreindan fund er að finna á heimasíðu Norður-Atlantshafsbandalagsins, þ.á m. yfirlýsingu fundanna og á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.





 

 


Fax:

+32 (0) 2 726-4531


Opening Hours:

Mon-Fri
09:00 - 17:00


Languages:

Icelandic, English, French.


 

Leturstærð: