Grein um Ísland í japanska tímaritinu ,,Punto Kids"
Tímaritið kemur út ársfjórðungslega og í vetrarútgáfunni þetta árið er Íslandi gerð góð skil en einn blaðamaður tímaritsins ferðaðist til Íslands til efnisöflunar.
Tímaritið sérhæfir sig í umfjöllun um fjölskyldur og barnauppeldi. Í vetrarblaðinu má stóra grein um Ísland og íslenskt fjölskyldulíf. Greinin heitir ,,Ísland - Þróað, hamingjusamt land". Í greininni er reynt að benda á þau lykilatriði sem skapa fjölskyldum á Íslandi hamingju. Þar er einnig sagt frá borgarlífinu í Reykjavík, matarmenningu, þjónustu fyrir foreldra sem auðveldar þeim barnauppeldi, umhverfi barna, náttúru Íslands, ásamt fleiru. Með greininni eru margar skemmtilegar og fallegar ljósmyndir frá Íslandi.
Tímaritið er fáanlegt í öllum betri bókabúðum.

