Flutningur NHK-sinfóníuhljómsveitarinnar á Sumartónum eftir Ţorkel Sigurbjörnsson
Undir stjórn Vladimírs Ashkenazys í Suntori Hall 21. og 22. febrúar nk. kl. 19:00.
Í tilefni af 50 ára stjórnmálasambandsafmćli Íslands og Japans í desember sl. mun Sinfóníuhljómsveit japanska ríkisútvarpsins (NHK) flytja verkiđ Sumartónar, eftir tónskáldiđ Ţorkel Sigurbjörnsson, 21. og 22. febrúar nk. Nánari upplýsingar um tónleikana og sölu miđa má finna á heimasíđu NHK. Tónleikarnir eru númer 1591 á síđunni.
Ţorkell Sigurbjörnsson fćddist áriđ 1938. Hann stundađi nám í píanóleik viđ Tónlistarskólann í Reykjavík en ţegar hann hélt til Bandaríkjanna til framhaldsnáms urđu tónsmíđar hans ađalnámsgrein. Ţorkell stundađi nám viđ Hamline-háskólann í Minnesota og viđ Illinois-háskóla í Champaign-Urbana. Ţar ađ auki sótti hann tónsmíđanámskeiđ í Darmstadt í Ţýskalandi og Nice í Frakklandi. Ásamt ţessu hefur Ţorkell stundađ píanóleik, starfađ sem tónlistargagnrýnandi og dagskrár-gerđarmađur viđ Ríkisútvarpiđ. Ţorkell er afkastamikiđ tónskáld og á verkaskrá hans er ađ finna hljómsveitarverk, konserta, kammertónlist, óperur, sönglög og kórverk.
Sumartónar eru tónlist hinna glöđu endurminninga um róluvöllinn viđ Freyjugötu í Reykjavík sem á sumrin vaknađi til annars og meira lífs en um veturinn og var ţar alltaf gnótt leiktćkja, rólur, vegasölt og sandkassar, rennibraut, klifurgrind og fleira.

