Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Ísland og WFP

Ísland og WFP

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) var sett á stofn árið 1963. Stofnunin leitast við að uppfylla þörf á matvælum í neyðartilfellum og styðja við efnahagslega- og félagslega þróun. Árið 1994 var stofnunin fyrsta stofnun Sameinuðu þjóðanna til að gefa út markmiðsyfirlýsingu sem miðar að því að eyða hnattrænu hungri og fátækt. Matvælaáætlunin er stærsta hjálparstofnun í heimi og kemur matvælum á hverju ári til 90 miljón manns, þar af 56 miljónum barna, í 80 löndum.

Í kjölfar stofnunar fastanefndar Íslands gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm átti Guðni Bragason fastafulltrúi hinn 31. ágúst fund með James T. Morris, framkvæmdastjóra WFP, í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Róm. Fastafulltrúi bar framkvæmdastjóranum kveðju utanríkisráðherra og upplýsti um aukin framlög íslenskra stjórnvalda til þróunarsamvinnu og neyðaraðstoðar og vilja þeirra, til að styðja starf WFP. Minntist hann m. a. á aðstoð við verkefni WFP við Indlandshafi og aðstoð við verkefni WFP í Haítí, Írak og Súdan. Fastafulltrúi ræddi einnig samstarfssamning Íslensku friðargæslunnar og WFP (Stand-by Agreement) og sagði Íslendinga áhugasama um að leggja til heppilega starfsmenn í verkefni WFP.

Íslensk stjórnvöld hafa um nokkurra ára skeið greitt fjárframlag til starfsemi WFP. Fjárframlagið, sem aukist hefur ár frá ári, hefur runnið til margvíslegrar neyðaraðstoðar WFP víða um heim. Nýlega studdu stjórnvöld neyðaraðstoð WFP við fórnarlömb flóðbylgjunnar miklu á Indlandshafi og veittu aðstoð við skólamáltíðaverkefni fyrir stúlkur í Írak. Íslensk stjórnvöld hafa áður veitt fé til verkefna WFP í Haítí, Írak og Súdan. Hinn 11. október 2005 ákvað ríkisstjórnin að veita 75.000, USD til mannúðar- og neyðaraðstoðar WFP í Pakistan. Ríkisstjórnin ákvað 20. desember 2005 að styrkja starf WFP í þágu hungraðra í Malawi með ISK sex milljónum (um $95,000,-)

Á árinu 2006 hefur ríkisstjórnin veitt umtalsverðu fé til neyðaraðstoðar WFP víða um heim. Hinn 10. júlí var veitt 7,5 milljónum kr. til stuðnings við hjálparstarf WFP til aðstoðar íbúum á Austur-Tímor. Hinn 14. ágúst var veitt 100,000,- USD til mannúðar- og neyðaraðstoðar WFP í Líbanon. Hinn 31. ágúst 2006 var veitt 200 þúsund Bandaríkjadollurum til neyðaraðstoðar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) í Darfurhéraði í Súdan og hinn 1. september 2006 var ákveðið að veita 100,000,- USD til mannúðar- og neyðaraðstoðar WFP á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna.

WFP leitar iðulega til aðildarríkja S. þ. eftir aðstoð og hafa íslensk stjórnvöld með margvíslegum hætti brugðist við óskum stofnunarinnar. Leitast er við að meta fljótt óskir stofnunarinnar um stuðning við aðstoðarverkefni og koma til hjálpar með fjárframlögum eða öðrum hætti.

Gerður hefur verið samstarfssamningur milli Íslensku friðargæslunnar og WFP (Stand-by Agreement), sem gerir það mögulegt að senda starfsmenn af viðbragðslista Friðargæslunnar til hjálpar á svæðum, þar sem neyðarástand er. Þorbjörn Jónsson sendiráðunautur í skrifstofu friðargæslunnar og Guðni Bragason fastafulltrúi sóttu fund 8.-9. desember hjá WFP í Róm, til að ræða aukið samstarf. Í kjölfar þess var gengið frá því að tveir Íslendingar, Eldar Ástþórsson og Glúmur Baldvinsson færu til þjálfunar í birgðastöð WFP í Bari á Ítalíu. Glúmur fór síðan til starfa um mánaðartíma í Tanzaníu. Þá hefur Ilías Karl Moustakas starfað um nokkurra mánaða tíma í Líberíu innan ramma Samstarfssamningsins.

James Morris, framkvæmdastjóri WFP, sótti fyrsta árlegan samráðsfund Norðurlandanna um málefni WFP hér á landi í maí 2005. Á meðal þess sem rætt var á fundinum var hvernig tryggja ætti frekari skilvirkni fjármagns til neyðaraðstoðar sem og aðferðir og leiðir til fjármögnunar hennar. Rætt var um stefnuáætlun WFP fyrir 2006-2007, stöðu WFP með tilliti til endurskipulagningar S. þ. og þátttöku WFP í baráttunni gegn HIV/eyðni.

Morris átti fund með Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra, hinn 4. maí þar sem til umræðu var ástand fæðumála í heiminum og samstarf Íslands og WFP.

Hinn 26. apríl 2006 var haldinn í Osló árlegur fundur James Morris, aðalframkvæmdastjóra WFP, og Norðurlandanna, Belgíu, Bretlands, Hollands, Kanada, Sviss og Þýskalands og sótti Guðni Bragason fastafulltrúi í Róm fundinn fyrir Íslands hönd. Rætt var um ýmis mikilvæg málefni, sem varða stjórn og stefnumörkun og virkni WFP, m. a. stöðu stofnunarinnar innan umbótaviðleitninnar hjá Sameinuðu þjóðunum, klasamynstrið, mannúðarframlög, aðgengi að fæðuaðstoð og forgangsröðun, framtíðarútlit hvað varðar aðföng WFP og uppbyggingu sjálfsbjargargetu í samstarfsríkjum WFP.

WFP rekur upplýsingaskrifstofu fyrir Norðurlöndin í Kaupmannahöfn og stendur fyrir vefsíðu á íslensku: www.wfp.is

 

 

 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: