Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Íslandskynning í Flórens

12.5.2007

Borgaryfirvöld í Flórens buðu sendiráðinu og íslenskum aðilum að halda Íslandskynningu undir yfirskriftinni "Islanda Paesaggi di Luce" í kynningarsal á tveimur hæðum í Galleria Via Larga í miðborginni 28. apríl til 10. maí.

Ferðaskrifstofan Islandtours á Norður-Ítalíu, sem er í eigu Guðrúnar Sigurðardóttur, kynnti starfsemi sína í samvinnu við Icelandair. Haldin var sýning á verkum Rósu Gísladóttur myndlistarmanns og svissneska listamannsins Brigitte Reinhardt. Ásamt sendifulltrúa, opnaði sýninguna Tiziano Lepri, einn af varaborgarstjórum Flórens.

Í heimsókninni átti sendifulltrúi fundi með Eugenio Giani, fulltrúa fyrir alþjóðasamskipti borgarinnar, Paolo Bartolozzi, varaforseta héraðsráðs Toscana, og Giovanna Folonari, menningarfulltrúa Flórenssýslu. Kom fram hjá þeim góður áhugi á samvinnu við Íslendinga, aðallega á sviði menningar- jarðhita- og ferðamála. Var sendifulltrúi beðinn um að koma boði til borgarstjórans í Reykjavík um að koma í opinbera heimsókn til Flórens.

Fékk Íslandskynningin góða umfjöllun í fjölmiðlum á svæðinu. Að kynningunni stóð einnig UNESCO-skrifstofan í Flórens, en veg og vanda hafði af henni Íslandsvinurinn Massimo Sani, lögfræðingur og rithöfundur.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: