Ferðamálakynning á vegum Icelandair og sendiráðsins
Sendiráðið í Róm og Icelandair stóðu fyrir kynningu á starfsemi fyrirtækisins og ferðamöguleikum til Íslands hinn 21. júní sl. Kynningin fór fram í bústað Guðna Bragasonar sendifulltrúa í Róm og sóttu hana um 40 eigendur og forstjórar ferðaskrifstofa og blaðamenn starfandi í Róm og á suðurhluta Ítalíu. 
Tilgangur kynningarinnar var að kanna undirtektir og kynna þær fyrirætlanir flugfélagsins að fjölga beinum flugferðum milli Íslands og Ítalíu á næsta ári. Nú er vélum félagsins flogið beint til Mílanó tvisvar í viku.
Sendifulltrúi bauð gesti velkomna, og flutti stutt erindi um viðskipti Íslands og Ítalíu. Viðskiptin standa á traustum grunni, en innflutningur frá Ítalíu til Íslands er töluvert meiri heldur en útflutningurinn. Mikil sóknarfæri eru nú í ferðamennsku og komu hátt í tíu þúsund ítalskir ferðamenn til Íslands í fyrra. Þá kynnti sendifulltrúi starfsemi Íslensk-ítalska verslunarráðins. Einnig fluttu ávarp Stephen Brown, forstöðumaður skrifstofu Icelandair fyrir Suður-Evrópu, og forstöðumenn umboðsskrifstofu Flugleiða í Mílanó. Fjölluðu þeir um fyrirætlanir félagsins og Welcome on board-átak flugfélagsins. Kom fram mikil áhugi á því á meðal fundarmanna, að Róm bættist við áfangastaði félagsins.






