Íslendingar á Ítalíu
Íslendingar á Ítalíu
Sendiráð Íslands á Ítalíu leggur lið bæði þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum. Aðstoð sendiráðsins getur verið með ýmsum hætti. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna útgáfu vegabréfa, neyðar-vegabréfa, ökuskírteina og þannig hluta.
Það skal tekið fram að sendiráðið veitir enga fjárhagsaðstoð af nokkru tagi.
Sendiráð Íslands á Ítalíu sendir út tilkynningar um viðburði á vegum þess sem og aðra íslenska viðburði á Ítalíu á póstlista sem Íslendingar á Ítalíu geta skráð sig á. Sendiráðið við hvetja þá sem áhuga hafa á að hafa samband og láta skrá sig á póstlistann.







