Ísland og Ítalía
Viðskipti
Viðskipti ríkjanna standa á traustum grunni, þótt nokkuð halli á Íslendinga í þeim viðskiptum. Á árinu 2006 fluttu Íslendingar út vörur fyrir rúmlega 1,8 milljarð kr. til Ítalíu, sem er um 1% af heildarútflutningi Íslendinga. Ætla má þó, að ýmsar vörur, sem fluttar eru út til annarra Evrópusambandsríkja, eigi áfangastað á Ítalíu. Útflutningsvörur til Ítalíu eru aðallega sjávarafurðir og iðnaðarvörur, en Ítalía er nú orðin helsti útflutningsmarkaður fyrir íslenskt lambakjöt. Ítalir fluttu til Íslands vörur fyrir 14 milljarðar kr., sem er 3,6% af heildarinnflutningi til Íslands. Útflutningurinn til Ítalíu er ekki í samræmi við þá möguleika, sem stærð ítalska markaðarins býður upp á. Mikið verk er því framundan við að auka innflutning Íslendinga til Ítalíu og kanna frekari möguleika í viðskiptum ríkjanna. Íslensk-ítalska viðskiptaráðið gegnir mikilvægu hlutverki í þeim efnum.
Menning
Á þeim skamma tíma, tveimur árum, sem sendiráðið hefur starfað í Róm, hefur verið leitast við að finna hér snertipunkta við íslenskt menningarlíf og finna samstarfsaðila. Ljóst er, að Ítalar eru áhugasamir um íslenska menningu og er vissulega fyrir hendi óplægður akur í menningarsamskiptum. Norðurlöndin hafa sinnt menningarsamskiptum við Ítalíu afar vel og er mikill áhugi af Ítala hálfu á norrænni list og menningu, sem nýst getur Íslendingum. Gott samband hefur komist á við hagsmunaaðila í ferðamennsku á Ítalíu og eru þeir, t. d. Islandtours í Mílanó og Icelandair, áhugasamir um að nýta íslenska menningarviðburði í sambandi við starfsemi sína.







