Íslenskar stuttmyndir sýnar í Róm
Stuttmynda- og heimildamyndahátíðin TekFestival fór fram í Róm nýverið. Á henni voru meðal annars sýndar tvær íslenskar myndir, 'Anna and the moods' (Anna og Skapsveiflurnar) eftir Gunnar Karlsson og 'Wrestling' (Bræðrabylta) eftir Grím Hákonarson. Grímur hefur áður gert myndina 'Slavek the Shit' og fékk hún góðar undirtektir hvarvetna sem hún var sýnd.
Grímur var viðstaddur sýninguna og svaraði spurningum áhorfenda eftir sýningu. Mikla lukku vakti þegar hann reyndi að skýra út íslensku glímuna fyrir ítölskum áhorfendunum.
Jónas Haraldsson, starfsnemi, var viðstaddur viðburðinn fyrir hönd íslenska sendiráðsins í Róm.






