BIT-Ferðamálasýningin
Frá v. til h: Guðni Bragason, sendifulltrúi í Róm, Davíð Jóhannsson, forstöðumaður Ferðamálastofu í Þýskalandi, Antonía Guðnadóttir, Guðrún Sigurðardóttir, eigandi Island Tours og Jónas Haraldsson, starfsnemi í sendiráðinu í Róm.
Ferðamálastofa sækir BIT-ferðamálakynninguna í Mílanó
Á dögunum var haldin BIT-ferðamálasýningin í Mílanó á Ítalíu og var á henni sterk íslensk viðvera. Ferðamálastofa var viðstödd og þá var íslenska ferðaskrifstofan Island Tours einnig með bás á sýningunni.
Sýningin er ein sú fjölsóttasta í ferðamálaiðnaðinum. Fleiri en 155 þúsund aðilar frá fleiri en 152 löndum tóku þátt í sýningunni. Guðni Bragason, sendifulltrúi í Róm, og Jónas Haraldsson, starfsnemi, voru viðstaddir þegar fréttamönnum var boðið að kynna sér kynningarefni íslensku básanna.






