Reykjavíkurborg og listakonan Yoko Ono fá ítalska viðurkenningu fyrir Friðarsúluna
Ítalska Aurelio Peccei-stofnunin (Fondazione Aurelio Peccei) hefur veitt Reykjavíkurborg og Yoko Ono listakonu viðurkenningu fyrir Friðarsúluna i Viðey, "Imagine Peace Tower". Aðili að viðurkenningunni er einnig umhverfisverndarsamtökin L´eta Verde.
Afhending viðurkenningarinnar fór fram á ráðstefnu, sem haldin var í Þjóðarbókhlöðunni í Róm hinn 28. apríl sl. Eleonora Masini, prófessor við Gregorianháskólann í Róm (Universita Gregoriana), sem jafnframt er varaforseti Peccei-stofnunarinnar, veitti viðurkenninguna.
Guðni Bragason, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Róm, tók við henni fyrir hönd Reykjavíkvíkurborgar. Flutti hann stutt ávarp og las kveðjur og þakkir Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra, þar sem m. a. kom fram, að Friðarsúlan sé lýst upp með endurnýjanlegri orku.






