Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið

Viðskipta- og fjárfestingakynning í Mílanó, 26. maí 2008

23.4.2008

Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðið (IICC) halda íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í Palazzo Marino í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár hinn 24. maí.

Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, mun ávarpa fundinn, ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra, sem leggja mun áherslu á þema EXPO-sýningarinnar í Mílanó 2015: Fæða til handa mannkyni. Orka fyrir lífstíð.

Tilgangurinn er að hvetja til viðskiptatengsla milli fyrirtækja í löndunum og kynna fjarfestingamöguleika á Íslandi. Sérstök áhersla verður á banka- og fjármálaþjónustu og nýtingu umhverfisvænnar orku á Íslandi. Ferðaþjónustan mun einnig leika hlutverk í kynningunni og þá verður leitast við að koma íslenskri menningu á framfæri. Ræðumenn verða m. a. frá utanríkis- og utanríkisviðskiptaráðuneytinu, útflutningsráði, Fjárfestingastofu, Landsbankanum-Kepler, Icelandair, Island Tours, Ferðamálastofu og Becromal SpA. Hægt er að nálgast eintak af dagskránni hérna.

Um kvöldið verður sérstök ferðaþjónustukynning. Íslensk menning verður kynnt og þá verða hinir fjölmörgu möguleikar á ferðalögum um Ísland skoðaðir. Styrktaraðilar eru Icelandair, Island Tours, Bláa Lónið og Ferðamálastofa.

Mílanó og Norður-Ítalía eru á meðal þróuðustu iðnaðar- og viðskiptasvæðum Evrópu. Nokkur íslensk fyrirtæki eru með starfsstöðvar á svæðinu og hafa fjárfest þar í verksmiðjurekstri. Þar eru einnig starfandi fyrirtæki, sem hafa töluverðan áhuga á að fjárfesta á Íslandi. Boðið verður upp á möguleika fyrir tvíhliða fundi fyrirtækja.

Sendiráð Íslands í Róm sér um samhæfingu og skipulagningu á kynningunni í samstarfi við kjörræðismann Íslands í Mílanó, IICC og Ferðamálastofu. Jónas Haraldsson mun fara með samhæfingu fyrir hönd sendiráðsins.

Áhugasamir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að fylla út skráningareyðublaðið (nálgist það hér) og senda það til sendiráðsins í Róm, annaðhvort með faxi [+39 06 575 8012] eða með því að senda það í tölvupósti á federica@mfa.is / jonas@mfa.is.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: