Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið

Viðskipta- og fjárfestingakynning í Mílanó 26. maí 2008

2.4.2008

Sendiráð Íslands í Róm og Íslensk-ítalska verslunarráðið (ÍTÍS) ráðgera að halda íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í Mílanó hinn 26. maí 2008, í samvinnu við ýmsa aðila og stofnanir, þ. m. t. viðskiptaráðið í Mílanó. Dagsetningin er valin í tengslum við fyrsta beina flug Icelandair til Mílanó í ár.

Fyrirhugað er, að kynna fjarfestingamöguleika á Íslandi og skoða hvernig er hægt að auka fjárfestingar á milli landanna tveggja. Kynningin mun einnig nýtast fyrirtækjum, sem áhuga hafa á athuga viðskiptamöguleika. Sérstök áhersla verður á banka- og fjármálaþjónustu og kynningu á orkunýtingu á Íslandi. Ferðaþjónustan mun einnig spila hlutverk í kynningunni og þá verður leitast til þess að koma íslenskri menningu á framfæri.

Mílanó og svæðið í kring á Norður-Ítalíu er eitt þróaðasta iðnaðar- og viðskiptasvæði Evrópu. Nokkur íslensk fyrirtæki eru með starfsstöðvar á svæðinu og hafa fjárfest þar í verksmiðjurekstri. Þar eru einnig starfandi fyrirtæki, sem hafa fjárfest á Íslandi.

Sendiráð Íslands í Róm mun sjá um samhæfingu og skipulagningu á kynningunni í samstarfi við kjörræðismann Íslands í Mílanó, stjórnarmeðlimi IICC á Íslandi og á Ítalíu, Fjárfestingarstofu, Útflutningsráð Íslands, Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, Ferðamálastofu, Island Tours og Icelandair. Jónas Haraldsson mun fara með samhæfingu fyrir hönd sendiráðsins



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: