Hádegisverðarfundur með forseta Alþjóðasjóðs um þróun landbúnaðar (IFAD)
Lennart Baage forseti IFAD bauð Þórunni Sveinbjarnardóttur og íslensku sendinefndinni til hádegisverðarfundar í höfuðstöðvum IFAD, þar sem umhverfismál voru meðal annars rædd. Af hálfu IFAD sátu fundinn einnig Matthew Wyatt, varaforseti í utanaðkomandi málum, Gunilla Olson, umsjónarmaður stefnuskrár IFAD, Annina Lubbock og Maria Hartl, sérfræðingar í kynjamálum og Sheila Mwanundu, sérfræðingur í umhverfismálum.
Í fyrra greiddi Ísland í fyrsta sinn umtalsvert til sjóðsins, 100 þúsund USD. Þakkaði Baage fyrir framlag Íslands og sagðist vona eftir áframhaldandi stuðningi við starf sjóðsins. hann sagði sjóðinn hafa leitast við að fella umhverfisþætti inn í allt starf sjóðsins, enda bæri þeir mikilvægir í allri nýtingu og stjórnun náttúruauðlinda. Umhverfismat færi fram í tengslum við öll verkefni hans. Rætt var m. a. um að hugsanleg fjárveiting Íslands á yfirstandandi fari að einhverju leyti til verkefnis tengdu styrkingu á stöðu kvenna í þróunarríkjunum.
Í máli forseta IFAD kom fram að sjóðurinn stendur fyrir margvíslegum verkefnum á sviði landbúnaðar í þróunarríkjunum. Í þeim er allt er varðar stöðu kvenna og þátt þeirra í fæðuframleiðslunni afar mikilvægt. Þá var rætt sérstaklega um hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á stöðu kvenna sem stunda landbúnað í þróunarlöndum.






