Áhrif loftslagsbreytinga á stöðu kvenna
Kynjamálefni og loftslagsbreytingar voru viðgangsefni fundar Matvæla og landbúnaðarstofnunar S. þ. (FAO) 10. mars sl. í Róm, sem haldinn var í tengslum við hinn alþjóðlega kvennadag 8. mars, í samvinnu við Alþjóðasjóð um þróun landbúnaðar (IFAD).
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra var aðalræðumaður á fundinum og sagði hún m. a. að koma þyrfti stöðu kvenna í þróunarríkjunum rækilega inn í umræðuna um loftslagsbreytingar, en sem kunnugt er gegna konur miklu hlutverki í fæðuöflun í þróunarríkjunum. Þessi þáttur hefur að mati FAO verið vanræktur í umræðunni um loftslagsbreytingar, en afleiðingar þeirra geta ekki síst haft mikil áhrif á lífsafkomu fólks í brothættum landbúnaðarsamfélögum í þróunarríkjunum. Helsta verkefni FAO er að tryggja fæðuöryggi í heiminum, og stendur stofnunin fyrir virkri jafnréttisvæðingu í þróunarstarfi sínu. Ræða umhverfisráðherra endurspeglaði íslenskra stjórnvalda á jafnréttismál og hvatti hún til þess að ríki heims, jafnt þróunarríki sem hin þróuðu, gripu til virkra aðgerða, til að stemma stigu við áhrifum loftslagsbreytinga. Jafnréttismál hafa verið áherslumál Norðurlandanna innan hinna þriggja þróunar- og neyðaraðstoðarstofnana Sameinuðu þjóðanna í Róm.
Fundurinn var skref í þátt átt að senda skýr skilaboð til alþjóðasamfélagsins um að taka verði stöðu kvenna inn í umræðuna um loftslagsbreytingar og jafnframt festa Ísland kirfilega í sessi sem málsvara réttinda kvenna í þessu samhengi. Þetta er ekki síst mikilvægt í tengslum við umræðuna, sem framundan er um afleiðingar loftslagsbreytinga og ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar í Kaupmannahöfn á næsta ári.
Á fundinum fóru fram skoðanaskipti á milli stjórnmálamanna, sérfræðinga og ungs fólks úr alþjóðaskólum í Róm. Töldu forsvarsmenn stofnunarinnar afar mikilvægt að kynna þessi mál fyrir ungu fólki og var haldin samkeppni í skólunum um innlegg um viðfangsefni fundarins og kynningu þess á sjónrænan hátt. Umhverfisráðherra veitti verðlaun fyrir besta innleggið. Í ráðstefnunni tóku einnig þátt háttsettir stjórnarmenn frá Matvælaáætlun S. þ. (WFP) og Alþjóðasjóði fyrir þróun landbúnaðar (IFAD), sem mikla reynslu hafa af stöðu mála í þróunarríkjunum hvað varðar fæðumál, loftslagsbreytingar og jafnréttismál, auk fastafulltrúa aðildarríkja.







