Ísland með norræna formennsku í Alþjóðasjóði fyrir þróun landbúnaðar (IFAD)
Fastanefnd Íslands í Róm annast í ár norræna samræmingu um málefni Alþjóðasjóðs fyrir þróun landbúnaðar (IFAD). Sjóðurinn er ein af sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna og veitir lán til verkefna í landbúnaði og sjávarútvegi. Hann einbeitir sér að verkefnum, sem miða að því að þróa landbúnað og minnka þannig markvisst fátækt og hungur í heiminum.
Starfsemi sjóðsins beinist að hópum í landbúnaðarfélögum, sem eiga undir högg að sækja, en gegna miklu hlutverki í fæðuframleiðslu, svo sem smábændum, hjarðmönnum, fiskimönnum, landbúnaðarverkamönnum, konum, minnihlutahópum og frumbyggjum. Norðurlöndin hafa verið umsvifamikil í starfi sjóðsins og þykir sjóðurinn ein best rekna stofnun Sameinuðu þjóðanna. Þróunarríkin sjálf leggja umtalsvert til fjármögnunar sjóðsins. Ísland greiddi á síðasta ári 100 þúsund USD til endurfjármögnunar sjóðsins og er ætlunin að halda styrkja þátttöku Íslands í starfsemi hans, en framundan eru samningaviðræður um nýja áfyllingu sjóðsins.
30 ára starfsafmæli IFAD.
Á árinu fagnar IFAD þrjátíu ára starfsafmæli. Á aðalfundi sjóðsins 13. – 14. febrúar var þess minnst með margvíslegum hætti. Guðni Bragason fastafulltrúi flutti þar ávarp fyrir hönd Norðurlandanna og sagði m. a., að afmæli sjóðsins gæfi aðildarríkjum tækifæri til að vega og meta stöðu og stefnu hans. Landbúnaður og fjárfestingar í landbúnaði væru nú viðurkennd sem grundvallaratriði í baráttunni gegn fátækt og fyrir auknu fæðuöryggi. Norðurlöndin styddu þau markmið sjóðsins, að beina starfi sínu að þeim, sem eiga mest undir högg að sækja í sveitum, einkanlega í Afríku sunnan Sahara.
Smellið hér til þess að sjá ávarp Norðurlandanna.






