Tónleikum Arnaldar Arnarsonar gítarleikara vel tekið
Arnaldur Arnarson, gítarleikari, hélt á dögunum tónleika í basiliku Heilagrar Agnesar (Basilica di Sant'Agnese in Agone) við Piazza Navona í Róm. Tónleikarnir voru haldnir með samvinnu sendiráðs Íslands í Róm og félagsins Musica a Piazza Navona. Skemmst er frá því að segja að tónleikarnir tókust mjög vel og voru gríðarvel sóttir. Arnaldur spilaði meðal annars verk eftir Johann Sebastian Bach, Jón Ásgeirsson og fleiri.
Arnaldur er fæddur í Reykjavík og hóf að læra á gítar tíu ára gamall. Hann hefur meðal annars spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann býr sem stendur í Barcelona þar sem hann er skólastjóri og kennari við Luthier tónlistarskólann.






