Íslensk fyrirtæki taka þátt í 20. heimsþingi Alþjóðaorkuráðsins sem haldið var í Róm
Íslensk orkuútrás í Róm
Hátt í 40 forsvarsmenn og -konur íslenska orkugeirans tóku þátt í 20. heimsþingi Alþjóðaorkuráðsins (World Energy Council, WEC), sem var haldið í hinni nýju og glæsilegu ráðstefnumiðstöð Fiera di Roma 11. - 15. nóvember sl. undir yfirskriftinni “Framtíð orkumála í samofnum heimi”.
Á meðal íslensku þátttakendanna voru Geysir Green Energy, Hitaveita Suðurnesja, Jarðboranir, Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Landsnet, Landsvirkjun, Norðurorka, Orkuveita Reykjavíkur, Orkubú Vestfjarða, , RARIK ohf, Reykjavík Energy Invest, Samorka og Selfossveitur. Ráðið hefur starfað síðan 1924 og Ísland verið þátttakandi síðan 1950. Þorkell Helgason orkumálastjóri var formaður íslensku þátttökunnar.
Iðnaðarráðherra ræðir orku- og loftslagsmál.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sótti 20. heimsþing Alþjóðaorkuráðsins (World Energy Council, WEC) 11. - 15. nóvember sl. þingið fyrir hönd stjórnvalda og opnaði sérstakan íslenskan sýningarbás í sýningarskálum ráðstefnunnar, þar sem útrás Íslendinga í orkumálum var gerð sérstök skil. Iðnaðarráðherra tók þátt í pallborðsumræðum um orku- og loftslagsmál og ýmsum umræðum á þinginu. Aðrir íslenskri þátttakendur fluttu erindi um djúpborun, orkumál samgangna og loftslagsmál. Sendiráðið skipulagði heimsókn iðnaðarráðherra í samvinnu við iðnaðarráðuneytið. Einnig kom það á tengslum milli íslenskra orkufyrirtækja og ítalskra aðila í orkugeiranum. Geysir Green Energy-fyrirtækið bauð til veglegrar móttöku í tengslum við þingið og lék þar íslenska hljómsveitin Bogomil Font.
Forsætisráðherra fær heiðursverðlaun.
Geir H. Haarde forsætisráðherra sótti heimsþingið og voru honum afhent sérstök heiðursverðlaun Alþjóðavetnissamstarfsins (IPHE) fyrir framlag Íslands til framþróunar og kynningar á alþjóðavetnissamfélaginu.






