Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Norrænt ávarp um jafnrétti og þróun á 34. aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna

21.11.2007

Á 34. aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, var flutt sameiginleg norræn ræða um nýja stöðuskýrslu um framkvæmd áætlunar FAO um jafnrétti og þróun. Í ávarpinu sagði m. a., að FAO gæti þá aðeins náð markmiðum sínu í baráttunni gegn hungri í heiminum, ef þróunaráætlanir væru byggðar á jafnrétti kynjanna.

Fögnuðu Norðurlöndin stöðuskýrslunni um framkvæmdaáætlunina. Töldu þau, að hin nýja aðgerðaáætlun fyrir árin 2008 – 2013 væri vel til þess fallin að takast á við verkefnin framundan. Nýja áætlunin gerir ráð fyrir að jafnréttisvæðing (gender mainstreaming) sé rétta hin hnattræna strategía til að styrkja jafnrétti. Rannsóknir sýndu að jafnréttisvæðing hefði tekist vel á vettvangi stefnumörkunar, en miður í framkvæmd.

FAO væri í svipaðri stöðu og aðrar S. þ. stofnanir hvað það varðaði; stefnan væri fyrir hendi, en framkvæmdinni ábótavant. Látin var í ljós uggur um, að jafnréttisvæðingin hefði í raun valdið því að minni áhersla hefði verið lögð á hlutverk kvenna í þróunarverkefnum. Á þessum vanda þurfi að taka. Af þessum sökum þurfi að móta tvíþætta strategíu. Annars vegar þurfi að leggja áherslu á jafnréttisvæðingu og hins vegar á ákveðna íhlutun (targeted interventions).

Þörf er á öryggri forystu af hálfu mið- og efri laga í stjórnkerfi FAO, til að tryggja framgang aðgerðaáætlunarinnar í öllum sviðum stefnumótunar og áætlana. Því var fagnað, að FAO hefur styrkt jafnréttisvæðinguna með því að tilnefna jafnréttisfulltrúa (gender focal points). Mikilvægt væri, að þetta starf yrði búið vel út, hvað starfslýsingu, aðföng og þjálfun varðaði.

Vísað er til þess, að IEE-skýrslan veki athygli á því, að FAO hafi lágt hlutfall af konum í stjórnunarstöðum og á meðal hátt settra sérfræðinga, frekar að þær séu í skrifstofustöðu. Nýta þurfi IEE starfið til að skapa stofnun, sem sé öðrum til fyrirmyndar hvað varðar jafnrétti.

Þá er vakin athygli á sérstökum aðstæðum kvenna og barna, þegar neyðarástand ríkir.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: