34. aðalfundur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna haldinn í Róm
Þrítugasti og fjórði aðalfundur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) var haldinn 17. – 24. nóvember sl. í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Róm.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var aðalfulltrúi Íslands, en aðrir í sendinefndinu voru Guðni Bragason fastafulltrúi hjá FAO, Stefán Ásmundsson skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Bjarni Sigtryggsson, sendiráðunautur í auðlindaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Jónas Haraldsson, starfsnemi í fastanefnd Íslands í Róm, og Federica Frasca, starfsmaður fastanefndarinnar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var formaður og fundarstjóri á ráðherrafundi um fjármögnun landbúnaðar í þróunarríkjum. Fundinn sátu m. a. dr. Diouf aðalframkvæmdastjóri FAO, varaforseti Zambíu, aðstoðarframkvæmdastjóri landbúnaðarmála hjá Evrópusambandinu og framkvæmdastjóri verkefnis um græna byltingu í Afríku, en þeir héldu erindi áður en almennar umræður ráðherra hófust. Um 300 þátttakendur tóku þátt í fundinum auk tuga ráðherra víða að í heiminum. Þá sat landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra einnig ráðherrafund um fiskeldi, þar sem áhersla var lögð á uppbyggingu fiskeldis í þróunarríkjum.






