Heimsókn Geirs H. Haarde forsætisráðherra til Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO)
Geir H. Haarde forsætisráðherra og fylgdarlið hans heimsóttu Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) 26. október. Á móti þeim tók David Harcharik, varaframkvæmdastjóri stofnunarinnar í fjarveru dr. Jacques Diouf aðalframkvæmdastjóra. Forsætisráðherra sat upplýsingafund í fiskideild stofnunarinnar í boði forstöðumanns hennar, Ichiro Nomura.
Einn af yfirmönnum fiskideildarinnar er dr. Grímur Valdimarsson. Kynnt voru sérstaklega störf tveggja Íslendinga, sem vinna við stofnunina. Annars vegar starf Ara Guðmundssonar að öryggi fiskiskipa og hins vegar Gylfa Geirssonar að staðsetningarkerfi skipa á hafi úti.






