Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Fjárfestingarstofa Íslands og sendiráð Íslands í Róm halda kynningarfund um fjárfestingarmöguleika á Íslandi.

26.10.2007

Í tengslum við ársfund Íslensk-ítalska verslunarráðsins í Róm hinn 26. október stóð sendiráðiðið og Fjárfestingarstofa Íslands fyrir kynningarfundi um fjárfestingarmöguleika og viðskiptaumhverfið á Íslandi. Kristinn Hafliðason, starfsmaður Fjárfestingarstofu, hélt erindi og Guðni Bragason sendifulltrúi í Róm flutti inngangsorð.

Fyrirhugað er, að Fjárfestingastofa og sendiráðið muni á næsta ári standa fyrir kynningarfundum um fjárfestingamál samvinnu við ræðismenn Íslands í helstu borgum Ítalíu og viðkomandi verslunarráð.

Icelandic re-generation"Icelandic re-generation" var yfirskrift ferðamálakynningar og móttöku í tengslum við ársfund Íslensk-ítalska viðskiptaráðsins á vegum Icelandair, Islandtours, Ferðamálaráðs Íslands og Bláa lónsins hinn 26. október. Kynninguna sóttu fjölmargir ítalskir ferðamálafrömuðir og fjölmiðlamenn. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir kona hans voru viðstödd opnun kynningarinnar.

 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: