Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og ræður


Emma Bonino, utanríkisviðskiptaráðherra Ítalíu, og Geir H. Haarde, forsætisráðherra
Emma Bonino, utanríkisviðskiptaráðherra Ítalíu, og Geir H. Haarde, forsætisráðherra.

Samstarfshópur um eflingu viðskipta milli Ítalíu og Íslands stofnaður

29.10.2007

Á ársfundi Íslensk-ítalska viðskiptaráðsins 26. október greindu Geir H. Haarde forsætisráðherra og Emma Bonino utanríkisviðskiptaráðherra frá því, að ákveðið hefði verið að stofna sérstakan samstarfshóp (task-force), sem ætlað yrði að greina með hvaða hætti væri hægt að efla enn frekar viðskiptatengsl á milli Íslands og Ítalíu.

Sendiráðið í Róm hefur átt í viðræðum við ítalska utanríkisráðuneytið um stofnun samstarfshópsins og hefur verið rætt um að hópurinn skoði sérstaklega ákveðin svið: 1) Nýtingu umhverfisvænnar orku, en á Ítalíu eru margvíslegir vannýttir möguleikar í nýtingu jarðvarma. 2) Samstarf á sviði rannsókna og háskólastarfsemi. Slíkir samstarfsmöguleikar eru ekki síst á sviði orkutækni. 3) Bankastarfsemi og fjármálaþjónusta. 4) Almenn viðskipti og ferðamennska.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: