Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Fréttir og rćđur


Lífleg íslensk menningarstarfsemi í Norrćna listamannasetrinu í Róm í september

8.10.2007

Í september mánuđi hefur íslensk menning veriđ kynnt ţrjú kvöld í Norrćna listamannasetrinu í Rómarborg, Circolo Scandinavo. Voru kynningarnar vel sóttar. Tónskáldiđ Steingrímur Rohloff kynnti tónsmíđar sínar, leikritaskáldiđ Valgerđur Ţórsdóttir las úr verkum sínum og verk gjörningahópsins "The Icelandic Love Corporation" var sýnt á mynbandalistakvöldi.

Steingrímur Rohloff í vinnustofu sinniTónskáldiđ Steingrímur Rohloff kynnti tónsmíđar sínar hinn 20. september undir yfirskriftinni Serata Musicale. Rćddi hann um hljómsveitarverk sín og gaf áheyrendum kost á ađ heyra tóndćmi. ítalski gítarleikarinn, Stefano Cardi, lék síđan verk eftir Steingrím. Steingrímur hefur dvaliđ á setrinu í septembermánuđi ásamt leikkonunni og rithöfundinum Valgerđi Ţórsdóttur.

Valgerđur Ţórsdóttir viđ leiklestur á verkum sínumValgerđur hélt áheyrendum föngnum hinn 24. september međ leiklestri sínum úr verki byggđu á sögum Svövu Jakobsdóttur rithöfundar. Verkiđ hafđi veriđ flutt í Ţjóđleikhúsinu í fyrra. Valgerđur las einnig nokkrar örsögur, sem til stendur ađ gefa út innan tíđar. Ásamt Valgerđi las finnska ljóđskáldiđ, Sanna Tahvanainen, upp úr nýlegri ljóđabók sinni.

Međlimir gjörningahópsinsUndir lok mánađarins, hinn 28. september var haldiđ myndbandalistakvöld í samvinnu viđ norrćnu sendiráđin í Róm undir yfirskriftinni ON AIR – From North to South. Sýnd voru 12 myndbönd listamanna frá öllum Norđurlöndunum og Ítalíu. Af Íslands hálfu var sýnt myndbandiđ “Thank You” frá 2002 eftir gjörningahópinn “The Icelandic Love Corporation”.

Sýningarstjórar voru Mette Perregaard forstöđumađur listamannasetursins og Lorella Scacco listfrćđingur. Guđni Bragason sendifulltrúi í Róm bauđ gestum upp á veitingar eftir ţessar ţrjár menningarkynningar.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstćrđ: