Starfsmaður Landhelgisgæslunnar starfar tímabundið sem gestasérfræðingur í fiskideild Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO)
Starfsmaður Landhelgisgæslunnar, Gylfi Geirsson, starfar nú tímabundið sem gestasérfræðingur í fiskideild Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) á vegum utanríkisráðuneytisins og mun vinna að verkefnum tengdum fjareftirliti með skipum og rafrænum afladagbókum. Á alþjóðavettvangi hefur Ísland getið sér orð fyrir að vera í fremstu röð á þesu sviði. Verkefnið er unnið í samvinnu sjávarútvegsráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar.
Gylfi Geirsson hefur starfað hjá Landhelgisgæslunni um árabil og meðal annars verið forstöðumaður fjareftirlits og fjarskiptaþróunar síðan 2005. Hann er nú formaður tækninefndar Norð-austur-Atlantshafs-fiskveiði-samtakanna (NEAFC). Milli íslenskra stjórnvalda og FAO hefur verið gerður samningur um skammtímastörf íslenskra vísindamanna hjá FAO.
Innan fiskveiðilögsagna ríkja og á úthafsveiðisvæðum fer eftirlit með fiskveiðum í æ ríkari mæli fram með fjareftirliti og auðveldar það til muna skipulag eftirlits frá sjó og úr lofti. Veiðiskipin eru búin sjálfvirku senditæki, sem sendir boð um gervihnött til eftirlitsstöðvar í heimalandinu. Þannig er hægt að fylgjast náið með staðsetningu skipsins.
Fjareftirlitið eykur einnig möguleika á björgun skipa, enda er með þeim hætti að hægt að staðsetja skip í sjávarháska og auðvelda þannig björgunarskipi, öðrum nærstöddum skipum eða björgunarloftfari að nálgast það. Fjölþjóðlegar fiskveiðinefndir hafa meðal annars nýtt sér þessa tækni, til að hafa eftirlit með veiðum á úthafsveiðisvæðum. Fjareftirlitið kemur ekki í stað virks eftirlits á sjó og úr lofti en gerir það mun markvissara.






